© 2004  Rasmus ehf

Tíminn hraði - vegalengd

Leiðbeiningar til notenda.

Skynsamlegt væri að prenta prófið út á pappír og reikna það í rólegheitum. Lestu hverja spurningu vandlega, síðan skalt þú athuga þau svör sem sett eru fram og merkja við það svarið sem þú telur vera líklegast. Ath. Aðeins má merkja við eitt svar við hverja spurningu. Þegar allt er tilbúið sestu þá við tölvuna og merktu við réttu svörin.


Reiknaðu þessi dæmi og merktu við rétt svar.


1.           Hvað eru 0,6 klukkustundir margar mínútur?

Merktu hér Möguleg svör:
A  38min
B  36min
C  6min
D  12min


2.             Hvað eru 54 sekúndur stór hluti úr mínútu?

Merktu hér Möguleg svör:
A 0,9
B 0,8
C 0,54
D 0,45

 



3.             Breyttu 108 km/klst  í  m/s

Merktu hér Möguleg svör:
A 31 m/s
B 29 m/s
C 30 m/s
D 13 m/s

 


 

4.             Í tímatöku á Ítalíu fór Hakkinen hring á 1:22,898 min. en Coulthard á 1:23,336 min.  Hverju munar?

Merktu hér Möguleg svör:
A 0,562sek
B 1,438sek
C 0,358sek
D 0,438sek

 


5.     Hakkinen fór annan hring og bætti tímann í 1:22,877 sek.  Hringurinn er 5770 metrar.  Hver er hraðinn í m/s

Merktu hér Möguleg svör:
A 47 m/s
B 70 m/s
C 50 m/s
D 25 m/s

 


6.     Fisichella ók hringinn á meðalhraðanum 67 m/s.  Hver var hraðinn hjá honum í  km/klst .

Merktu hér Möguleg svör:
A 241 km/klst
B 402 km/klst
C 199 km/klst
D 170 km/klst

 


7.     Bíll ók í 2,5 klukkustundir á meðalhraðanum 95 km/klst .  

Hve langt ók hann (km)

Merktu hér Möguleg svör:
A 237,5km
B 200km
C 218,5km
D 188km

 


8.     Jói hjólaði 22,5 km. á meðalhraðanum 18 km/klst .  Hve lengi var hann á leiðinni?

Merktu hér Möguleg svör:
A 1klst 20min
B 1klst 25min
C 1klst 15min
D 1klst 12,5min

 



9.    
Siggi rútubílstjóri átti eftir 99 km. til Akureyrar.  Hann hafði 1 klst. og 6 mín. uppá að hlaupa, til að vera á áætlun.  Hvaða meðalhraða þurfti hann að halda til að vera á áætlun?

Merktu hér Möguleg svör:
A 62 km/klst 
B 90 km/klst 
C 93 km/klst 
D 120 km/klst 

 


10.     Björn tillukarl fór í róður.  Hann sigldi í 3 tíma á meðalhraðanum 5,6  sjómílur/klst  .      1 sjómíla er 1852 metrar.  Hve marga kílómetra hafði Björn siglt?

Merktu hér Möguleg svör:
A 311km
B 16,8km
C 13km
D 31km

 


 

Hlutfall réttra svara =

Rétt svör: Þín svör: