Þjöppun gagna með Winzip. © mars 2000 Tómas Rasmus
Ef þú velur "Winzip Classic" hnappinn á upphafsmyndinni kemur val um framhald.

Við ætlum að taka efni til pökkunar og veljum því hnappinn sem stendur á New.

Hér þarf að gefa pakkanum nafn sem á að taka við hinu þjappaða efni " sjá File name prufa". Jafnframt þarf að ákveða hvar pakkinn á að vistast á tölvunni þinni " sjá create in" .

Þá myndast tómur pakki undir nafninu "prufa" í möppunni "aLara". Næsta skjámynd opnast strax þar sem þú þarft að benda á þau skjöl eða möppur sem á að pakka inn í pakkann. Hér er valin einhver ritgerð sem heitir því frumlega nafni ritgerð og er geymd í möppunni "aflud_nam". Þegar þú ert kominn með það sem á að fara í pakkann smellir þú á "Add" hnappinn.

Þá kemur yfirlýsing um hvert innihald pakkans er: Pakkinn "prufa.zip" inniheldur ritgerð úr Microsoft Word kerfinu, þetta var gert þann 6.6.1999 skráin var 2.835.968 bæti en með pökkun verður hún aðeins 784.299 bæti eða skráin var pökkuð um 72% sem er ansi gott.
Ef ég vildi vista ofangreinda skrá (ritgerð.doc) ópakkaða á diskling myndi ég lenda í vandræðum því Windows stýrikerfið ræður illa við að vista á marga disklinga , hér þyrfti ég rúmlega 2 disklinga. Ef hins vegar ég vil vista með pökkun þá hefur pökkunarforritið vit á því að kalla til eins marga disklinga og nauðsyn krefur. Hér þyrfti pakkaða efnið hins vegar aðeins rétt rúmlega hálfan diskling.
Sjálfvirk afpökkun , "zip" pakkanum breytt í keyrsluhæft forrit sem sér um að afpakka sjálft.

Með því að velja "Action" hnappinn þá er boðið uppá að smíða keyrsluhæfa skrá "Exe file".

Ef þú samþykkir pakkaða pakkann þá myndast enn ein skrá sem heitir sama nafni en fær þetta "exe" aftan í sig í staðinn fyrir "zip". Þá getur móttakandi afpakkað skránni með því að smella á nafnið á pakkanum "prufa.exe".