Pennavinir " adressubókin".        © júní 1999 Tómas Rasmus

 

Til að halda utanum gælunöfn og pennavini notum við það sem kallast "Address book" í Communicator. Best er að fara í skipunina communicator sem er efst á skipanbretttinu í Netscape 4.

Hér velur þú "New Card" ef þú vilt setja inn upplýsingar um nýjan pennavin. Þá kemur innsláttarsvæði sem þú verður að fylla inní.

Hér pikkar þú svo inn viðeigandi gögn og samþykkir með því að smella á "OK" hnappinn.

 

Ef þú vilt hins vegar breita upplýsingum um einhvern sem fyrir er, þá smelir þú músarbendlinum á viðkomandi línu. Þá birtist spjald fyrir viðkomandi aðila.

Hér getur þú svo lagað pennavininn til og skipt um gælunafn (Nickname) ofl.

 

Til að nota þekkt gælunöfn í pennavinahópnum þá þarft þú að velja "Address" hnappinn þegar þú er í pósthaminum.

 

Um leið og þú samþykkir "Address" skipunina getur þú valið úr hópnum.

Hér er nægilegt að benda með músarbendlinum á viðkomandi aðila og og smella síðan á To: hnappinn þá færist póstfang viðkomandi þá í svæði To: í póstforritinu.

 

or_upp.gif (168 bytes)