Póstur og viðhengi.         © júní 1999 Tómas Rasmus

 

Stundum er þörf að senda eitthvað annað en texta sem þú semur á staðnum. Oft er þörf á að senda áður unnin ritvinnsluskjöl, töflureiknisskjöl, myndir , forrit eða músikstef osfrv. milli manna heimshorna á milli. Það er gert með svokölluðu "viðhengi" eða "trússi" ( attachment).

Þú byrjar á því eins og áður að velja póstfang (e-mail) sem senda á til.

Síðan smellir þú músinni á myndina af bréfaklemmunni. Hér tekur þú ákvörðun hvort senda eigi "File" sem getur verið allt sem tiltekið var hér að ofan eða hvort þú ætlir að senda vefsíðu ( Web Page). Þegar þú hefur staðfest valið opnast slóð á disknum þínum á því svæði sem þú ert að vinna á.

 

 

Hér þarft þú að hafa vit á því hvernig gögn eru varðveitt á diskinum til þess að þú getir fundir það sem senda á. Þú bendir á möppuna sem um ræðir og smellir músarbendlinum á viðeigandi skjal.

 

Þá kemur mynd af pappír ásamt tilvísun til þeirrar slóðar sem efnið var tekið úr ( Hér: C:\myndir\afmæli.bmp"). Síðan er ekkert eftir nema að ýta á "Send" hnappinn til að koma skjalinu til skila. Við móttöku á skjalinu kemur þessi sama bréfaklemma sem auðkenni á skjalinu, sem segir viðtakanda að það sé eitthvað aukadót með í póstinum.

 

or_upp.gif (168 bytes)