Póstforritið í Netscape. © júní 1999 Tómas Rasmus
Hér skulum við skoða betur hnappana á skipanalínunni, þú velur þér hnappa úr töflunni hér fyrir neðan og ýtir á þá til að sjá hvernig þeir virka.
Ef þú
velur þennan "Get Msg", þá opnast fyrir póst
til þín og þú þarft að svara með þínu sérstaka lykilorði til að komast lengra.

Ef þú átt póst þá kemur fram feitletrið lína fyrir neðan "inbox" svæðið, þú smellir bendlinum á þessa línu og pósturinn opnast til lestrar.
![]()
Þessi hnappur er til þess að skapa nýjan póst. Þú smellir
á hnappinn og forritið sem meðtekur póst til sendingar opnast. Það eina sem þú
þarft að gera er að velja póstfang (e-mail) viðtakanda.
Það setur þú í svæðið To: síðan þarf að fylla út í svæðið subject með
einhverju lýsandi hugtaki. Að lokum skráir þú inn þann texta sem þú vilt senda.

Þessi hnappur er notaður til þess að svara skilaboðum og
pósti á nokkuð sjálfvirkan hátt. Um leið og skilaboð hafa verið valin er ýtt á
þennan takka, þá fyllast svæðin "To:" og "Subject" með þeim gildum sem tilheyra þ.a.e.s "To:" fær innihaldið póstfang (e-mail)
þess sem sendi þer bréfið og "Subject" fær
sama innihaldið og í bréfinu sem verið er að svara að viðbættu forskeytinu "Re:". Þú kemst síðan í textaham og getur unnið
með frumbréfið og skotið inn þínum texta milli lína ef þú kærir þig um.

Til að koma síðan svarinu á framfæri þarft þú aðeins að smella á "Send" hnappinn.
Áfram hnappurinn er notaður til þess að senda bréf sem þú
hefur meðtekið til þriðja aðila. Hér þarf að velja póstfang (e-mail) þriðja aðila og smella svo með músarbendlinum á
"Send" hnappinn og afrit af bréfinu fer í heilu
lagi til móttakanda.
Þessi hnappur er ætlaður til þess að flokka skilaboð.
Margir flokka póstinn sinn jafnóðum og hann berst eftir efnisinnihaldi eða sendanda.
Sumir flokka ekki neitt og nota því þennan hnapp sjaldan.
Þessi hnappur er notaður til þess að skoða ólesinn /
óopnaðan póst, honum er þá flett eftir innihaldslýsingum "Subject"
fram og til baka.
Prentarahnappurinn er notaður hér eins og í flestum öðrum
tilfellum til að skrifa beint út á prentarann sem er skilgreindur sem sjálfgefinn
prentari í þínu umhverfi. Þú getur valið um að prenta lárétt og lóðrétt osfrv.
Þessi hnappur er ætlaður til að eyða þeim skilaboðum sem
eru virk á hverjum tíma. Ef þú hefur valið línu í t.d Inbox möppunni og ýtir á
þennan hnapp þá eyðast viðkomadi skilboð út úr viðkomandi
pósthólfi og fara yfir í hólfið "Trash".